Ragna og Guðjón í Egernsund
Djammið í Sönderborg
Myndirnar mínar
18.08.2006 13:53:37 / ragna

17. febrúar 2007 á litla krílið að koma í heiminn :) Get ekki beðið!

Ég og Guðjón fórum í sónar í dag sáum litla krílið í fyrsta skipti. Yndisleg tilfinning, ég gat ekki hætt að brosa :) Barnið á að koma 17 febrúar í heiminn og ég er semsagt komin 13 vikur og 6 daga á leið og það er 8,2 cm á hæð, fyrir utan fætur. Síðan fer ég aftur í sónar 22 september og þá kemur í ljós hvort kynið það er, ef það leyfir okkur :) Maginn hefur stækkað töluvert, byrjað að þrengjast að pissublöðrunni svo að ég þarf stanslaust að pissa :S Frekar pirrandi að vakna á næturnar alveg í spreng! Ég var í sumarfríi í 3 vikur í júlí/ágúst sem var alveg æðislegt, það var sko slappað af og unnið í herberginu sem að við ætlum að vera í með barnið. Er ekki næstum því búin, tók svoooo langann tíma í að rífa veggfóðrið af veggjunum. Skil ekki hvað danir eru að hugsa með að setja alltaf veggfóður á veggina, það var alveg 3 eða 4 lög af veggfóðri í herberginu. Það á svo eftir að sandspasla veggina,mála ofl. Ég fór í baby sam í dag eftir sónar, bara til að kíkja. En svo varð ég að kaupa rosalega sætar bangsimon myndir til að líma á vegginn og bangsimon hurðahúna á fataskápinn. Vá hvað það á allt eftir að vera í bangsimon:) Ég ætla svo að opna barnalandasíðuna í dag eða á morgun.Og svo ætla ég að setja inn sónarmyndirnar og fleirri myndir inn og skrifa kannski eitthvað. Kveðja Ragna ólétta :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 17:47:16 / ragna

:)

Góðan og blessaðan daginn. Ég ætlaði bara aðeins að láta heyra í mér svona til tilbreytingar. Ég er komin svona c.a. 11 vikur á leið og það er komin pínu bumba :) Og mér heilsast bara mjög vel, pínu ógleði af og til ekkert til að kvarta yfir. Og við erum bara að bíða eftir að komast í sónar, þá kemur alveg í ljós hversu langt ég er komin. Við erum ekkert smá spennt að sjá litlu baunina :) En allavega er ég að vinna í barnalandasíðu fyrir barnið.

www.barnaland.is/barn/49005

það er ekki komið mikið inn en ég ætla að vera dugleg að setja myndir inn og svona :) Kveðja Ragna.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 20:37:18 / ragna

jæja ekki ennþá

Hej hej,,

Allt gott að frétta af okkur hérna, Ragna lenti í því um daginn að verða ólétt og skoðar því ekkert annað enn bleiur og annað barnadót núna..

Hún er komin um 9 vikur á leið, og á að bera einhverntíman í feb 2007, fáum væntanlega nákvæmari dagsetningu á þetta í næstu viku. Þannig að það er allt vaðandi í hamingju hérna,

Enn allavega þá er ÉG að verða pabbi 8), ég er búinn að ákveða að gefa barninu tækni-legó kubba í fæðingargjöf, fjarstýrðan bensín bíl í sumar gjöf og svo fjarstýrða flugvél í jólagjöf :haha: .. hehe..

Við erum búin kaupa okkur sundlaug í garðinn

http://gudjon.myphotoalbum.com/view_photo.php?set_albumName=album11&id=16_07_06_sundlaug_001_minnkud

hérna er mynda af rögnu sóla sig í henni.. 8|

Í gær smurðum við ragna okkur nesti og fórum út að sigla á gúmí tuðru sem við eigum, fórum lengst út á Flensborgar fjörðin og lágum þar í sólbaði, geðveikt næs. erum reyndar bæði vel brend eftir þetta.

Ég var að setja inn myndir inn á mynda-albúmið, þetta eru aðallega myndir af hundunum frá síðustu 2 mánuðum.

Núna vorum við að koma úr löngum hjólatúr með hundana, vorum að leyfa hundunum að svamla í sjónum,, ég er í þessum töluðu orðum að upploada myndbandi sem sýnir Rex ná í risa drumb sem ég hendi út í sjóin, hann algjörlega elskar að leika sér í sjónum,, Ozzy er ekki alveg eins spenntur fyrir því enn fór nú samt nokkrum sinnum út í.

Jæja þetta er komið fínt í bili,, ég ætla að blogga fljótt aftur,, læt vita hvað læknirinn segir í næstu viku um bumbubúann.. (Ragna má ekkert vera að því að blogga,, er alltaf að skoða bleiur..:haha: ..) bæb

Mvh.

Guðjón Þór.


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 17:01:57 / ragna

Gaui á afmæli í dag :)

Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Gaui, hann á afmæli í dag :)

Det er Gudjons fødselsdag, hurra! hurra! hurra!

Já nú er hann Gaui minn orðin 23 ára. En getur því miður ekki haldið afmælispartý útaf hann er í miðjum prófum. Og hann fær engann pakka frá mér í dag :S útaf eg er búin að vera lasin og hef ekkert komist út. En ég bæti þetta upp og kaupi eitthvað flott handa honum í næstu viku :) En Pétur var svo æðislegur að kaupa afmælisköku handa honum, þeir voru sko í skólanum í dag og Gaui kom kl:18.

Kanínan lét sjá sig í morgun í búrinu sínu en svo slapp hún aftur :S

Ég var að breyta til í stofunni  í dag og þetta er bara allt annað. Orðið heimilislegt hjá okkur :)

Það verður ekki lengra í bili

kv. Ragna


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 00:56:41 / ragna

Mín bara dugleg í blogginu:) hóst !

Haldiði hvað ????????

Litla sæta kanínan mín slapp áðan!!! Og ég fárveik að reyna að ná henni úti, berfætt í sandölum í rigningu og roki :S en árangurslaust :( En vona bara það besta, kannski finn ég hana á morgun og næ henni. Það er bara svo dimmt núna að þetta er ómögulegt. Það er svona mánuður síðan ég lét hana út í garð í afgirtu svæði. Loksins þegar hún var orðin gæf þá þurfti hún endilega sleppa! ekki það að mér væri sama annars. Jæja ég skal hlífa ykkur við þessu kanínutali, það er flest öllum sama um kanínur, but not me

Ég er barasta búin að vera dugleg á djamminu , með stelpunum í sönderborginni uppá síðkastið :) dugleg meðavið hvernig þetta hefur verið frá því að við fluttum. En get ekkert farið þessa helgi útaf veikindum :( En er allavega boðin í stelpupartý til Hjördísar í byrjun júní, sem er alveg pottþétt að ég fari í :) vil ekki missa af því marr ;)

Það gengur alveg svakalega vel með Rex. Hann stækkar ekkert smá hratt og styrkist. Ozzy ræður varla við hann lengur. Við erum byrjuð í hvolpaþjálfun með þá, ég með Ozzy og Gaui með Rex og það gengur alveg ljómandi vel. Rex er sérstaklega fljótur að læra nýja hluti. Og honum finnst fátt skemmtilegra en að sækja bolta og koma með hann til manns. Hann gæti gert það endalaust, ekkert smá gaman af því. Gaui er búin að vera meira og minna í skólanum og ég búin að vera veik frá því á mánudag, svo þeir voru ekkert búnir að fara í göngu í nokkra daga. Í gær fann Gaui sér svo tíma til að fara með þá og Rex var svo ánægður og æstur að hann hljóp óvart á Ozzy, og greyið litla getur ekki staðið í afturfótinn eftir það:S Örugglega ekkert alvarlegt, allavega pottþétt ekki brotinn. Ef hann verður ekki orðinn góður á mánudaginn þá ætlum við með hann til læknis.

Fjöldskyldan mín ætla svo að koma í júní :) Jibbí !!! og verða í heilan mánuð en samt ekki allan tímann hér hjá okkur. Þau koma með ferjunni á bíl og ætla að ferðast eitthvað um Noreg og auðvitað koma svo til okkar:) En ég verð í sumarfríi í mánuð en auðvitað ekki þegar þau verða hér :( ég fer sko í frí í júlí. Ég er mikið að spá í að ferðast eitthvað í fríinu, auðvitað bara ef Gaui verður þá í fríi. Annars mun ég bara slappa af og njóta þess að vera í fríi, vinna í garðinum og svona :)

Jæja það verður ekki meira í bili. Ég vona að ég blogga aftur á næstunni ;) er ekki svo duglegasta við þetta. En ég er allavega frekar dugleg við að setja myndir inn :) en aðalega af hundunum og landslagsmyndir, útaf okkur vantar alveg litla og handhæfa myndavél sem við gætum farið með á djammið, okkar skemmdist fyrir löngu og Gaui keypti svo bara þvílíkt stóra sem að maður fer ekki með hvert sem er. Jæja nóg með þetta, ég ætla að fara smá spöl út að leita af kanínunni.

Sí ja later babys

kv. Ragna


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 16:24:45 / ragna

Vorum að fá okkur alveg yndislegan doberman hvolp :) :)

Jæja nú er Ozzy búinn að eignast "lítinn" bróður, sem er reyndar aðeins stærri en hann og verður miklu,miklu stærri:) Á föstudeginum í síðustu viku fórum við Guðjón og Ozzy til Sjælland til að kíkja á doberman hvolpa. Við sigldum fyrst frá Als til Fyn, sem er mun þægilegra en að keyra alla leiðina. Það voru fimm hvolpar eftir, 3 svartir og 2 brúnir, okkur langaði í svartan svo það voru 3 sem komu til greina. Við vorum frekar lengi að velja, erfitt val en við vorum sammála um að fá þann minnsta og rólegasta. Þau voru búin að nefna hann Rex og við ætlum að halda því. Hann var 10 vikna þegar við fengum hann og er semsagt 11 vikna núna og er 8,6 kg og verður 40-45kg fullvaxinn. Frekar mikið stór:) Þeim kemur öllum mjög vel saman og ég held bara að Ozzy sé mjög ánægður með nýja brósa sinn;) Smá öfundsýki fyrst, en allt í gúddí núna. Það er svo á planinu að fara með hann í hvolpaþjálfun og svo fara í alskyns þjálfun þegar hann verður eldri. T.d. erum við til að fara með hann í sporþjálfun.
Ég er búin að setja inn ágætis slatta af myndum af honum og fl. svona ef þið hafið áhuga á að kíkja.

» 7 hafa sagt sína skoðun

11.02.2006 09:06:58 / ragna

It´s alive!

Hej, hej alle sammen.... Héðan úr danaveldinu er bara allt gott að frétta. Erum að fara á þorrablót í kvöld sem íslendingafélagið heldur, get ekki beðið eftir að geta hakkað í mig hákarl mmmmmmmmmm. Í fyrra þá sat ég hliðin á Kollu og henni leist ekkert á blikuna og var alveg að kafna úr hákarlalykt :) hélt öruggl að ég væri eitthvað rugluð og einn maður var með þvílíkan undrunarsvip og spurði hvort ég ætli virkilega að borða þetta. Þetta er allavega uppáhaldið mitt. Nóg um það.. við erum með Capone í fóstur og verðum með hann til apríl, Gústi og Rebekka eru í California að vinna. Rosalega gaman að vera með 2 hunda og þeir skemmta sér alltaf vel saman. Æi sorry en þetta verður bara mjög stutt blogg loksins maður kom sér í að blogga! er nefnilega að fara út að hlaupa. Hilsen Ragna


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 19:04:47 / ragna

Betra seint en aldrei!

Tími á blogg? :S Já kannski fyrir svona 3 mánuðum síðan :) hehe er greinilega ekkert að nenna þessu!

Það er barasta allt gott að frétta af okkur. Jólin verða bara róleg hjá okkur við ætlum bara að vera hér í Danmörku og hafa það gott og njóta þess að vera í fríi. Og svo erum við að fara að sækja Capone (hundinn þeirra Gústa og Rebekku) núna um helgina og hann á eftir að eyða jólunum með okkur. :) Það verður skoooo stuð hjá Ozzy og honum og auðvitað okkur, alltaf jafn gaman að fylgjast með þeim leika sér saman.

Það gengur mjög vel í vinnunni hjá mér en gengur samt ekki nógu vel í að skilja þessa suðurjósku sem er töluð þarna en þetta er allt að koma. Ég er búin að vera núna í 2 daga lasin heima, þurfti endilega að smitast af Gaua. Ef einhver verður lasinn í kringum mig, þá smitast ég næstum alltaf :S Ömulegt, en reikna með að fara í vinnuna á morgun er aðeins að skána. Ég fæ jólapakka frá vinnunni á morgun:) en það er ekki ástæðan fyrir að ég ætla að reyna að mæta, alveg satt. Gaui er á fullu í prófunum og er til 10 á kvöldin í skólanum. En sem betur fer er hann næstum búinn, á bara 1 eftir. Næsta fimmtudag verð ég bara til 12 og þá byrjar jólafríið.... JIBBÍ!!! og byrja svo að vinna aftur 3 janúar. Lengsta jólafrí í mörg ár hjá mér :)

P.S. Ég er búin að setja inn nokkrar myndir inn ef þið viljið kíkja ;)

sí ja later people

kveðja Ragna


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.10.2005 10:20:36 / ragna

Loksins bloggar maður aftur!

Kannski komin tími á smá blogg eða kannski langt síðan það var kominn tími á það:S Er bara ekki búin að vera með netið í næstum mánuð útaf fluttningnum. Eins og stendur í fyrra blogginu að þá var ég á Íslandi í ágúst. Sem var bara ágætt þótt að ég vann mestmegnis allan tíman. Ágætt að koma aðeins heim og hitta ættingja. En degi áður en ég átti að fara heim til danmerkur, þá hringdi Gaui í mig og sagði mér að Manpower væru búnir að finna vinnu fyrir mig og ég ætti að byrja á næsta mánudag og vera í viku. Ég var ný búin að hugsa hvað það verður æðislegt að fá smá frí til að slappa aðeins af. En glætan að ég myndi segja nei við þessu, geggjað að fá vinnu. Ég átti bara að vera í viku en svo lengdist það þeir vissu ekki hversu lengi þeir þyrftu á mér að halda. En svo bauð verkstjórinn mér fasta vinnu. Auðvitað sagði ég já við því. Þetta er mjög fín vinna. Ég er að búa til rafmagnstjakka sem eru t.d.notaðir í rúm á sjúkrahúsum til að lyfta þeim upp og niður. Versta er að ég er í næstum 30 mín að keyra í vinnuna, en það er ekkert alvarlegt.

Þetta er fyrsta vikan sem það eru engir gestir frá því að við fluttum hingað. Fyrsta daginn kom Óli og var í næstum 2 vikur, svo 2 dögum seinna komu Árni bróðir Gaua og 2 vinir hans og voru í nokkra daga og svo 2 dögum seinna eða degi seinna komu mamma,pabbi,Óskar og amma og voru í nokkra daga. Þetta er búið að vera svaka gaman og við erum búin halda allavega 3 party . Við fórum á grensann stuttu eftir að við fluttum og keyptum þar rosalega flott pool borð á aðeins 30000. Geggjað cool að vera með pool borð heima hjá sér við erum með það í stofunni :)

Þegar Óli var hérna þá var voða lítið gert af því að ég var á kvöldvakt frá 3-22. En allavega síðasta daginn hans þá var farið í gokart. Ég,Gaui og Óli vorum að keppa en ég var bara í sunnudagsbíltúr og fannst það bara voða gaman á meðan þeir voru að hringa mig á fullu og óli veifandi gifsinu hehe. Hann er semsagt handleggsbrotinn en náði samt að vera í rassgatinu á gaua allan tímann og taka 1 frammúr honum.

Þegar Árni og vinir hans voru hérna þá var djammað föstud og laugard. Á föstud var geggjað stuð ég hef ekki skemmt mér svona mikið síðan ég veit ekki hvenær. Það var farið á djammið í sönderborginni. En á laugard var haldið smá party rosalega fáir mættu og svo var farið í flensborg á eitthvað diskotek þar. Ég var ekkert að fíla mig þar og hafði enga lyst á áfengi svo ég var bara edru. En sko á sunnudeginum var sko farið í gokart geggjað fjör. Ég var ekki í neinum sunnudagsbíltúr í þetta sinn það var sko bara allt gefið í botn og keyrt hratt í beygjunum, spólað frekar oft. En ég var ekki svo djörf að vera að klessa á hina eins og þeir voru að gera. Ég hélt allavega í þá og vinur árna var alltaf fyrir aftan mig. Nefni engin nöfn ;)  við vorum 5 eða 6 og ég var eina stelpan. Ég er sko að fíla þessa íþrótt í botn. En já greyið gaui þurfti að horfa bara á af því að hann hafði fengið sér einum of mikið kvöldinu áður:S

Svo þegar fjöldskyldan var hér þá var málað húsið, unnið í garðinum og þau keyptu brennsluofn eða hvað sem það heitir nú. Veit allavega að það heitir kamine á dönsku. Þau voru náttúrulega ánægð með húsið sem þau voru að kaupa og skoða í fyrsta skipti eftir kaupin. Tala nú ekki um hvað við erum svakalega ánægð hér. Þetta er ekkert smá flott hús, margt sem þyrfti að gera í því. Áttum heima í 53 fm holu og núna búum við í 138 fm húsi með 48 fm bílskúr.

jæja ég lofa að skrifa fljótlega aftur, ætla að fara að gera eitthvað annð en að hangsa í tölvunni.
bæjó

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.08.2005 20:26:44 / ragna

Ísland á morgun!

Jæja ég fer víst til Íslands á morgun að vinna, vinna og aftur vinna í 2 vikur. Ég ákvað í dag að fara til Íslands og hjálpa foreldrum mínum í búðinni, af því að þau eru í algerum vandræðum, eru semsagt allt of fá og skólavertíðin að byrja. Svo þegar ég kem heim aftur þá flytjum við 5 dögum seinna.:) Hlakka ekkert smá til ! En já Gaui keyrir mig semsagt á morgun á flugvöllinn í Billund og flugið er kl:23. Ágætt að koma aðeins á klakann en bara verst að ég hef engann tíma til að gera neitt þar nema vinna og örugglega hitta ættingja og já hið langþráða BAÐ!  Hehe er frekar þreytt á að vera bara með sturtu hér. En það verður reyndar bað í húsinu sem við flytjum í, en held bara að við myndum fara á hausinn ef við myndum nota það daglega. Nóg um það, ég er ekkert smá svekkt yfir að missa af að djamma með Höddu, Jónasi og þeim. Ég sem var búin að hlakka svo lengi til þess að fá þau í heimsókn! Ég verð bara að lifa við þetta og Gaui djammar bara fyrir mig.;)  Kannski maður fari að gera eitthvað af viti.  hej hej

» 7 hafa sagt sína skoðun

10.08.2005 17:59:17 / ragna

Við erum að fara að flytja ligga ligga lái :)

Jibbí bara vika í Höddu, Fúsa, Eyþór, Jónas og kærustuna. En það er reyndar ekki alveg víst að ég verð þá á staðnum :S Ég fer nefnilega kannski til Íslands að vinna í bókabúðinni, hjálpa múttu og pabba. Og verð þá í 2 vikur.
Þau eru að fara að kaupa hús hérna í Danmörku og við Guðjón munum leigja það af þeim. Og við flytjum í það 1 sept. Ekkert smá mikill munur meðan við hvernig við búum núna. Þetta er 138 fm hús með 48 fm bílskúr en við búum núna í 56 fm íbúð. Eini gallinn við þetta er að það er 14 km frá sönderborg en það er ekkert svakalegt. Og bara korter til flensborgar.Þetta er svakalega flottur bær og húsið er rétt við ströndina og hliðin á húsinu er stór kornakur og skógur við kornakurinn. Svaka flott útsýni. Svo þegar þið komið að heimsækja okkur þá getiði bara gist hjá okkur; ekki málið!  2 auka svefnherbergi.:) Ég set svo myndir af því inn bráðum. Við eða Guðjón er að vinna í þessum kaupum þessa dagana á fullu.
Gaui er ennþá að vinna og síðasti dagurinn minn var á föstudaginn. Hann er reyndar ekki lengur hjá ISS, hann var þar í viku og svo fékk hann strax aðra vinnu, hérna í sönderborginni, munur að geta bara hjólað í vinnuna.
Læt þetta duga í bili, Gaua langar að komast í tölvuna. Bæó
Ragna

» 7 hafa sagt sína skoðun

22.07.2005 16:03:56 / ragna

Vinna og vinna

Jæja hellú langt síðan síðast:S Héðan er bara allt gott að frétta. Ég og Guðjón erum bara vinnandi núna alla virka daga frá 6-14 í Danfoss. Ég er búin að vinna þarna í 2 vikur og verð í 2 vikur í viðbót. Ég vinn í skemmtigarðinum þarna, að þrífa 3 hús og labba um allan garðinn að kíkja yfir klósettin með einum kalli. En fyrstu vikuna var ég í einni smiðju að þrífa þar. Ótrúlega er þetta róleg vinna, alltaf pásur, er næstum helminginn af deginum í pásum, en samt geggjuð laun. Og svo er þetta góð dönskukennsla. Gaui vinnur fyrir ISS, sem er tjónaþjónusta. Semsagt er hann að þrífa í einni byggingu Danfoss sem brann. Þrífandi sóta allan daginn eða til 2 meina ég. Hann er búinn að vinna í 3 daga og verður í 3 vikur þarna. Hann er ekkert svaka ánægður með að vinna við að þrífa en allavega betra en engin vinna.

Við kíktum til Gústa og Rebekku síðustu helgi og gistum í eina nótt. Það var alveg geggjað stuð. Það var drukkið, spilað yatzi og kíkt í bæinn um nóttina, og bara skemmt okkur svaka vel.  Og hundarnir skemmtu sér alveg konunglega saman, að venju.
Það er búið að vera rigning síðustu daga,sem er bara æðislegt, búið að vera allt of heitt áður, maður verður svo dasaður útaf hitanum.
Jæja ég ætla að fara að gera eitthvað af viti. Þangað til næst ...... bæ bæ # Ragna#

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2005 20:52:58 / ragna

Ég er komin með topp:)

Jæja ég er þá búin í viðtalinu hjá manpower (ráðningarskrifstofa) og gekk bara ágætlega. Við vorum nokkur þarna og tókum nokkur test, m.a. áttum við að setja númeruð spjöld á réttan stað í hólfaða hillu sem var með númer á. Svona til að sjá hvort maður getur eitthvað unnið. Og svo eftir þessi test áttum við að bíða frammi eftir að hann kallaði einn og einn inn í viðtal og sagði hvernig okkur gekk í testinu. En allavega eru þeir að leita að vinnu fyrir mig sem hentar mér:).Svaka þægilegt að þurfa ekki að leita sjálfur á fullu.

Við fórum svo í dag á stóru ströndina, og VÁ ekkert smá mikill öldugangur. Við Guðjón vorum í sjónum næstum allan tíman, að hoppa í öldunum. Við fórum lengst útí, það var grunt þar og svaka gaman en svo færðumst við alltaf nær og nær ströndinni við hverja öldu, og svo áður en maður veit af þá getur maður ekki stigið niður á botninn og þá var sko drukkið sjó, frekar óþægilegt :S Skrýtið að það var dýpra við stöndina en lengst útí. Óskar fór 2 sinnum útí með okkur, og í seinna skiptið var Gaui doldið í burtu frá okkur, og svo skeði þetta, allt í einu gátum við ekki stigið í botninn. Og Óskar panikaði og hélt utan um mig til að halda sér uppi, og díses ég nátturlega á kaf. Frekar óþægilegt! Og það var gleypt sjó, again!  Það var allavega geggjað stuð á meðan maður var ekki að gleypa sjóinn ;)

Síðasta föstudag fórum við Guðjón í líkamsræktarstöðina, bara að skoða pleysið og til að láta búa til program fyrir okkur. Konan þarna sem við töluðum við, spurði okkur ýmsar spurningar fyrir þetta prógram. Hún spurði hvor ég væri í vinnu og ég sagðist vera að leita. Og haldiði hvað?:) hún bara bauð mér vinnu í hreyngerningum þarna, en samt var ekki 100% viss um hvort það væri búið að ráða einhvern. Ef ég fengi þetta þá væri ég líka að hjálpa til að opna pleysið á morgnana og vá hún sagði að ég og Guðjón fengjum þá að æfa þarna frítt. En ég veit ekki hvað ég á að gera ef þeir í manpower finna svo kannski betri vinnu fyrir mig og ég kannski bara ný byrjuð þarna. En allavega er það ekki víst hvort ég fái þetta. Vona bara það besta:)
Við ætlum núna að byrja í ræktinni á fullu, erum búin að fara í einn prufutíma og svo förum við í annan á morgun. Það var norskur þjálfari að kenna okkur á tækin og sýna okkur prógrammið. Svakalega erfitt að skilja hann, held bara að hann hafi verið að tala norsku. En okkur líst bara svaka vel á þennan stað og eigum eftir að eyða miklum tíma þarna að rækta vöðva;) hehe

Við fórum svo á djammið á laugardeginum bara 2 í fyrsta skipti frá því að við vorum ný flutt hingað. En við hittum fullt af liði sem við þekkjum og barasta svaka fjör. Fullt af fólki úr skólanum mínum og svo Hjördís, Ingvar og Ingó. Við skriðum svo heim um 5. 
Og já ég fór í klippingu til Hjördísar fyrir 2 vikum síðan og langaði að breyta til og lét hana klippa topp á mig og litaði það dökkt með gyltar strípur, ég er alveg geggjað ánægð með útkomuna, frekar heitt að vera með topp:S en allavega töff8) 

Jæja vá ég er bara búin að skrifa allt of mikið. Læt reyndar líða svo mikinn tíma á milli blogga. Segi bara bæ í bili and see you soon :) Ragna

» 7 hafa sagt sína skoðun

29.06.2005 20:46:12 / ragna

Fyrsta færslan hans gaua

Jæja þetta blogg heitir víst “Bloggið okkar” þannig að kannski ég (Guðjón) fari að prófa að skrifa eitthvað hérna.

 

Í síðustu viku kláraði ég síðasta prófið á þessari önn og fékk allar einkunirnar, hérna eru þær:

Eðlisfræði: 7 ----

Vélfræðireikningar: 9

Rafmagnsfræði: 10

Annarverkefni: 10

Stærðfræði: 11

ég hef nú smá afsökun með eðlisfræðina, eðlisfræði prófið var alveg fáránlega erfitt og það var líka um 50% fall þannig að þetta er ekkert slæmur árangur að fá bara 7.


Núna er ég bara að bíða eftir að fá hringingu frá ráðningaskrifstofu um vinnu, ég á von á að fá hringingu næstu dögum, allavega var sagt við mig að það væri stöðug vöntun á mönnum í framleiðsluna hjá Danfoss, og ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur, J vonandi er það rétt.


Ragna er svo að fara í viðtal hjá þessari ráðningarskrifstofu á mánudaginn næsta, þannig að hún ætti líka að fá vinnu fljótlega.

 

Svo er Óskar ennþá í heimsókn hjá okkur, Óli bróðir hans kemur líklegast út eftir 2 vikur og nær í dýrið, og verður þá hérna í eina viku.

 

Veðrið er búið að vera alveg klikkað gott, alltaf yfir 20° og létt skýjað eða alveg heiðskýrt, bara alladaga. Við erum líka búin að vera dugleg að fara á ströndina, og orðin rosa brún flott.

 

Ég er búinn að skrá mig í surfing klúbbin hérna í Sönderborg og er búinn að fara tvisvar út og sigla á svona seglbretti. Þetta er alveg klikkað gaman, alveg ekta sport fyrir mig.

Ég fór síðast að sigla í kveld og var úti á sjónum í tvo og hálfan tíma, get orðið siglt alveg í báðar áttir og snúið við án þess að detta í sjóin (allavega stundum).

 

Jæja nenni þessu ekki lengur, verð að fara að gera eitthvað af viti, fá mér bjór eða eitthvað.

Með kveju frá dk.

Guðjón.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2005 08:27:47 / ragna

Blleeessaa!

Hér er allt bara gott að frétta. Það er búið að vera geggjað gaman í skólanum. Í gær var Ivan að spila spænska tónlist ofl.í stofunni okkar og dansaði við eina stelpu, held að þau hafi verið að dansa salsa, (annars hef ég ekkert vit á þessu), en þetta var svaka flott hjá þeim, og það var fullt f fólki að horfa á. Svo kl: hálf 11 var farið í salinn að syngja og við fengum ávexti, snakk og djús. Það var svo verðlaunaafhending og auðvitað fékk ég ekkert, reyndar fengu engir úr okkar bekk, SKRÝTIÐ! eða þannig:lol: það eru alltaf svo mikil fíflalæti í bekknum okkar:D Svo eftir það var spilað tónlistina í hinum bekknum sem er hliðiná okkar og ég kíkti þangað og allir voru að dansa. Og ég er ekkert fyrir svona tónlist svo ég vildi bara horfa á en nei, Robert og Ivan drógu mig á dansgólfið og létu mig dansa8| hehe það var bara mjög gaman, dansaði reyndar ekki mikið. Ivan dróg mig til sín og hann sveiflaði mér í hringi, svimaði frekar mikið eftir það. Og Robert dansaði líka við mig kannski frekar mikið klesst upp að mér8| en þetta var já bara geggjað skemmtilegur dagur. Við í bekknum mínum ákváðum að fara í bæinn saman að djamma eftir 2 vikur og ég ætla að halda smá fyrirpartý:haha: hlakka ekkert smá til, þetta eru svo skemmtilegir krakkar sem eru með mér í bekk.
Óskar er núna búinn að vera í 2 vikur og bara svaka gaman að hafa hann. Erum búin að fara nokkru sinnum á ströndina og körfu ofl saman.
Læt þetta duga í bili. Bæ bæ
Ragna

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2